If it's Lágmói, then it's hardcore
04.05.2007 13:45:34 / Torfi

Læri

Ég er að læra núna. Rarr.

Ástæða þess að þessi síða hefur verið í lægð síðastliðna mánuði er sú að ég einfaldlega mundi ekki passwordið. Þetta kemur sterkt inn aftur, nema Bogi bloggi aftur undir áhrifum LSD.

Tíminn leiðir allt í ljós.

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 14:24:17 / Bogi

Nýjustu fréttir

Allure var demotaður í TC, dkp officer núna! haha.. kmr slacker! :D

Annars er nýji O.C. kominn, þ.e. 1.þáttur í 4.seríu, og hann olli mér sko ekki vonbrigðum. Ryan Atwood sko of svalur!

Já og Háli brósi 7 leikjum frá National Championship úrslitunum! til hamingju með það bezti.


Nú þessi færlsa kom bara útaf Óskari ´nokkrum´ Sigþórssyni, sem var að suða í mér á msn um það...

....Hvað ertu að suða mamma mín?!!?



Jé, best að fara klára lesa þessa Psychology bók mína.

Korben out!



» 13 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 17:08:17 / Torfi

Tölvuleikjafíkn?

Hæ,

Long time no see. Þessi síða verður endurlífguð um leið og skólinn byrjar.

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4298196/1

100-120 tímar á viku.

168 klst í vikunni.

48-68 tímar í að sofa og real-life?

*sigh*


» 12 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 00:39:16 / Bogi

...


Waclaw Lubomir Skocki

» 15 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 11:17:50 / Bogi

Keflavík, you make me wanna lala

Æj,æj, töpuðu litlu Keflavíkurstrákarnir í körfubolta?!?

Njarðvík vs. Skallagrímur á morgun í körfunni og líka Sindri vs. Njarðvík í fótbolta á Stjörnuvellinum. Ég spái Njarðvík sigri í báðum leikjunum.

en allavega.. kmr bara næst Keflavíkur-aular! ... en samt ekki :D

» 34 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 17:09:03 / Bogi

You make me wanna lala



En allavega hæjj!

Ég sit nú bara hérna inní herbergi útí bílskúr fyrir framan fartölvuna í smá lærdómspásu og hef því ákveðið að skella inn nokkrum orðum um síðustu daga.

Síðstu dagar hafa nú gengið alveg með ágætum, en það helsta var nú þessi blessaða bústaðaferð sem við vinirnir fórum í um síðustu helgi (17.-19.). Heppnaðist sú ferð, að mínu mati, bara mjög vel og held ég að allir hafi skemmt sér ágætlega.

Allavega skemmti ég mér vel og þá sérstaklega á laugardagskveldinu með Atla, Ara Lár og Herði Ara. Má held ég með sanni segja að ef málshátturinn "hláturinn lengir lífið" er sannur, séum við fjórir, ég, Atli, Ari og Hörður, búnir að lengja líf okkar smá slatta sko:D (ég hef nú bara aldrei hlegið jafn mikið á ævi minni!).

En svona á heildina litið var þessi bústaðaferð bara hin rólegasta og við náðum held ég öll að læra, jah allavega viku lærdómsskammt þarna á tveimur dögum, sem er nú bara nokkuð gott.

Vil ég bara þakka öllum, sem hlut áttu að máli í þessari bústaðarferð/lærdómsferð, fyrir góða helgi saman. jei%%


En að öðru máli. Að því sem ég best veit er síðasti fótboltatíminn okkar núna á föstudaginn í Garðinum kl 20:00! Reynum því allir að mæta svo að hópurinn verði 10 manns því þá er svo gaman (Ef einhver mætir ekki og nær ekki að redda sjálfur, tala við mig eða Teit..)


Já ég sá þarna myndbandið við lagið Kokaloca (rétt skrifað?) með ég veit ekki hverjum. Er þetta ekki íslenskt hljómsveit/gaur/ ???..allavega sérstakt myndband þar á ferð finnst mér.

Annars var síðasti The O.C. mjög sad, greinilegt að Ryan Atwood og Marissa eru bara hætt saman:S ekki gott mál. (kannski ég þurfi að senda Ryan Atwood ljóðið mitt til að hressa hann við og hughreysta ? hmm)

Fór í gær að horfa á minn litla bróðir keppa í fótbolta í Reykjaneshöllinni með 2.flokk Njarðvíkur gegn ÍA. Því miður tapaði Njarðvík naumlega 2-3. En ég var samt stoltastur með hann Harald bróðir minn því hann "gaf" framherjanum í ÍA heilahristing í leiknum.
Já þið þarna úti, þið viljið sko ekki fara í skallaeinvígi við hann Hála brósa, hann vinnur í fyrstalagi boltann í einvíginu og skallar síðan höfuðið á ykkur er hann er á leiðinni niður þannig að þið fáið heilahristing. (Háli sagði eftir á að gaurinn hefið ekki vitað neitt í sinn haus eftir þetta högg)
hehe..en mér var samt skemmt á hliðarlínunni er þetta gerðist. Vonandi var þetta bara ekki alvarlegt fyrir strák-greyið.


En lagið í dag hjá mér klárlega Sense of Touch úr myndinni Crash..held ég sé búinn að vera með repeat á því hérna í lappanum í allavega klukkutíma.


bless bogi frá segir Aulamóa. (gestaþraut: raðið orðunum þannig að úr verði kveðja/lokaorð)


» 28 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 16:00:15 / Torfi

Sumarbústaðaferð

Eins og titill þessarar færslu gefur til kynna þá verður þessi ferð tileinkuð sumarbústaðaferðinni.

Hóhóhóhóhópurinn verður eftirfarandi:

  • Ég (Torfi)
  • Kristín
  • Bogi
  • Steinar
  • Ingi
  • Atli
  • Höddi
  • Bjöggi
  • Ari Lár
  • Reynir
  • Haffi
  • Haraldur
  • Bjarni (?) (Kemur kannski á laugardaginn, ef lærdómurinn leyfir að hans sögn)


Hvað á að taka með? Hvað á að gera?

  • Hver reddar tónlist?
  • Á að taka spil með? (Trivial Pursuit or sum)
  • Hvað á að borða? Grilla? Steik? Hamborgari? Pylsur?
  • Hvað á að drekka? Bjór? Vatn? LOL?
  • Ég sting uppá skollaleik undir áhrifum!
  • Eitthvað ferskt bara....

Endilega commentið og komið með uppástungur! :)

Torfi át.


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 14:17:43 / Torfi

Staðreyndir...

Hæ...

Nokkar staðreyndir:

Fortíð:

  • Of mikið af CS
  • Of mikið af WoW
  • Of lítill lærdómur
  • _Alltof_ mikil leti
  • Of mikið af KFC
  • Of lítið af fótbolta
  • Alltof fáar rennitæklingar
  • Of lítill fíflagangur
  • Of lítið af massa
  • Of lítið blogg
  • CS (?)

Nútíð:

  • Háskólabíó, salur 3
  • Sitjandi við hlið Boga
  • Bogi að leggja lokahönd á Ryan Atwood Trilogy (verður birt hér síðar)
  • Ratatat - Seventeen Years á fóninum
  • Bið eftir rútu á leið heim
  • Blogg
  • ALDREI HÆTTA
  • Sumarliði ícs

Framtíð:

  • Meira af lærdómi
  • Minni/Enginn CS
  • WoW (?) .. ætli það ekki.
  • Kristín
  • Minni leti
  • Meira af aldrei hætta.
  • Labb niðrá BSÍ
  • Rútuferð heim
  • Bústaðaferð
  • Djamm
  • Skapa meistarann með daglegri þjálfun
  • Meiri fótbolti
  • Range Rover (499 horsepower, OC style)
  • Annað tattoo
  • Miklu meira af fíflagangi
  • Meira af bloggi, vonandi.

Torfi.feisbotterofdeath.


» 24 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 11:36:11 / Bogi

Sakna Ryan Atwood-s.

Já það er kominn föstudagur sem þýðir að það er FÓTBOLTI í kvöld í Garðinum .°_°.
Og ég vil bara minna á að þeir LÁTI VITA sem mæta ekki í kvöld. Frekar langt síðan við vorum síðast 10 að spila:S Bara nóg að hringja í mig (Bogu Haraldsdóttur) eða í Hershöfðingjann hann Teit og við munum reyna redda manni:D (þ.e. ef þið náðið ekki að redda sjálfir.)

En já, síðustu vikur hafa verið alveg ágætar, slatti mikið að gera eins og gengur. Síðan er ég farinn í fitun, þannig að nú borða ég KFC mjög oft til að fitna.
Það sem hefur samt dregið mjög úr skemmtanagildi síðustu vikna er að The O.C. er í pásu/hléi til 9.mars, þannig að núna eru komnar held ég 2 vikur sem ég hef ekki getað séð The O.C. og það er bara meira en að segja það! :(


En í gær fékk ég óskemmtilegar fréttir um að við fjölskyldan (Ég) værum kominn í 9 gb í utanlandsdownload. Og þar sem við erum bara með 4 gb frítt í utanlands.dl. þá er þetta slatti. Er grunur hjá netfyrirtækinu að þetta sé vegna leiks sem ég og Háli höfum spilað smá í rúman 1 mánuð. En flest allir sem ég hef talað við segja að það sé ómögulegt.
hmm...ráðgáta?... ég held samt að þetta sé bara Torfi, hann hefur örugglega ráðið passwords kóðann inná þráðlausa netið mitt og er bara ALLTAF að dl erlendu stuffi :D

En ég segi þetta nóg í bili, ætla samt að benda ykkur á eitt g0tt lag í lokin sem kom einmitt í nýjasta The O.C. , þ.e. The O.C. 315.

Sufjan Stevens - For the Widows in Paradise, for the Fatherless in Ypsilanti.

hér er texti við þetta fallega lag :)

http://www.songmeanings.net/lyric.php?lid=3530822107858497956

bæbæ, farinn á KFC í hádeginu.

» 31 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 16:15:33 / Torfi

Blogg, Pendulum, Zaki og kynlíf.

daginn...

 

 



Það er víst löngu kominn tími á færsla þannig að:

 

 



Þá er skólinn byrjaður aftur í öllu sínu veldi með meðfylgjandi heimadæmum og verklegum æfingum. Þetta árið var í upphaflega skráður í 6 námskeið. Vegna anna ákvað ég að skrá mig úr einu námskeiðinu, til að hafa meiri tíma fyrir hin. Líkinda og tölfræði verður bara að bíða síns tíma. En það er allt gott og blessað.

 

 



Föstudagskvöldið 20. Janúar:
Var rosalegt. Sérstaklega vegna þess að ég hélt að afmælið hans Markúsar væri þetta sama kvöld og ég æltaði sko _aldeilis_ að mæta, en síðan komst ég að því að laugardaginn eftir. Ég var sko búinn að vera marga klukkutíma í stressi að finna einhverja gjöf og búinn að pakka henni og allt. Allt ready. Neinei, allt kom fyrir ekki og afmælis gjöfin er enn heima hjá Bjarka, uppá sjónvarpinu. Geðveikt já.

Kvöldið byrjaði samt sem áður með því að fara heim til Bjarka á stúdentagarðana og þar var pítsa og bjór á samt American Dad. Hörkufjör, enda voru Zaki, Elmar og Bjöggi þarna ásamt mér og Bjarka. Þeir sveinar tóku 9. rútuna heim, þannig þeir beiluðu fljótlega um 20:30. Þá ákváðum ég og Bjarki að taka smá CS á þetta, báðir komnir vel í glas. Þar sem við skiptumst á roundum í CS:S. Góð skemmtun þar, ójá. Aðeins seinna þá fórum við niðrí Stúdenta Kjallara. Bjarki var víst búinn að lofa að hitta einhverja þýska gellu þar, þannig við fengum okkur sæti, innan um alla útlendingana. Í alvöru talað þá vorum við þeir einu þarna inni sem voru af íslensku bergi brotnir, kannski fyrir utan barþjónana sem töluðu nú íslensku, en voru klárlega ekki hreinræktaðir. Stuttu eftir þetta, eftir að þær þýsku komu, röltu við niðrí bæ. Þar sem Bjarki beilaði fljótlega á mér til að fara á Oliver með þeim þýsku og til að sykurhúða ekkert þá fór Bjarki heim með annarri þýskunni og *insert-random-dirty-word-here* henni. Þá vildi svo til að ég kom auga á Eddu bekkjarsystur úr verzló og Sigrúnu vinkonu hennar. Við rúntuðum um alveg þangað til ég fór á Nasa. En þar var einn uppáhalds drum&bass DJ-inn minn með tónleika. Einn af 3 meðlimum grúppunar Pendulum. Þeir voru svo sannarlega geðveikir. Ég hef aðeins einu sinni upplifað aðra eins stemmingu áður og það var á tónleikum með Prodigy í Laugardalshöllinni hérna um árið. Ég var í góðra vina hóði þetta kvöld með Helga Jó, Dóra (EKKIDNA), ÓPí og Trausta. Síðan var Steinar Hugi þarna eitthvað að ljósmyndast ásamt ógleymdum Eddu og Sigrúnu. Stemmari ég segi þér.

Ég rakst á margt skrítið fólk á þessum tónleikum, allt fólk í misgóðu ástandi. Það sem stendur uppúr í þeim pakka er að sjá ice ~ blibb dansandi beran að ofan næstum því uppá borði, Priceless :D. Mig minnir að ég hafi talað eitthvað við hann, ábyggilega eitthvað um gamla tíma þegar hann var að keppa á móti okkur í körfum með Fjölni. Heimski gaur, þurfti náttulega að skora einu sinni sigurkörfuna á síðustu sek sem var til þess að við uruðum ekki íslandsmeistarar.

Pendulum: http://www.breakbeat.co.uk/images/artistPhotos/pendulum-july03-large.jpg

 

 



Já og Zaki bað mig um að koma til skila að hann gæfi ókeypis kynlífsráðgjöf. Ekki ónýtt það, og rær hann ekki blint í sjóinn á þeim miðunum. ;)


En í kvöld fer ég á mitt fimmta Nemó, það verður án efa stuð. Ég og Kristín ætlum út að borða með bekknum hennar í Perlunna. Síðan er það bekkjarpartý hjá henni og svo annað partý og að lokum ball í Gullhömrum. Feis.

 

*bæ-veif*


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 15:58:31 / Bogi

Saga um góða vináttu og umhyggju.

Ég ætla setja litla sögu sem ég ritaði um daginn mér til skemmtunar. 
Ég nota reyndar nafn þarna sem er vel þekkt, en það geri ég einungis vegna þess að þeir sem kannast við nafnið ættu að muna eftir útliti "persónunnar" sem er mjög svo sætt.  Hitt nafnið, þ.e. nafnið á kettinum er aftur á móti vel þekkt innan Lágmóans..og það er ekkert að því.

Einu sinni, á heitum og fallegum sumardegi, fór Dúbbi Dúfa að tína korn af götunni.  Þá kom Kötturinn Rófulausi og ógnaði Dúbba Dúfu með afar háværu mjálmi.  Dúbbi Dúfa varð hræddur og flögraði upp í næstu trjágrein en passaði sig líka á því að vera það hátt uppi að Kötturinn Rófulausi næði honum ekki.  Kötturinn Rófulausi varð þá vonlaus og leiður því hann hafði ekki fengið neitt sómasamlegt að borða í næstum heilan dag.  Hann var orðinn svo svangur.

Dúbbi Dúfa sá hversu illa Kettinum Rófulausa leið og hugsaði með sér að auðvitað ætti hann að koma fram við Köttinn Rófulausa eins og hann vildi að Kötturinn Rófulausi kæmi fram við sig.  Flögraði því Dúbbi Dúfa, varlega, niður af trjágreininni og til Kattarins Rófulausa.  Og þá bauð Dúbbi Dúfa honum að koma með og gæða sér á korni af götunni.


 

 

Kötturinn Rófulausi trúði vart sínum eigin eyrum og varð afskaplega glaður og þáði boðið með þökkum.  Aldrei áður hafði hann eignast svona góðan vin.  Hann hét því að vera aldrei vondur né vilja öðrum illt framar.  Og saman gengu þeir, hlið við hlið, að staðnum á götunni er kornið lá og brögðuðu sér á gómsæta korninu og töluðu saman um lífið og tilveruna og hversu ómetanlegt það væri að eiga góðan vin.


 

 

 

 

Þessi litla saga ætti að vera ofarlega í hugum okkar allra og endurspegla gjörðir okkar í lífinu.;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 10:00:56 / Bogi

Föstudagur til fótbolta, laugardagur og sunnudagur til harðsperra

Já, ætla bara að minna alla á að það er FÓTBOLTI í Garðinum klukkan 20:00 í kvöld! víj,-

... og það er sko ekkert að því!

Hittumst á vígvellinum! :)

Balló

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 00:00:05 / Bogi

Áramót!!

Ég óskar hér með öllum gleðilegs nýs árs! vííj

Árið 2006!!! ...og það er sko ekkert að því!

Áramótakveðja,
Bogi Haraldsson

» 13 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 18:06:33 / Bogi

Jólablogg!

Jæja, nú er klukkan orðin sex á aðfangadagskveldi og flestir byrjaðir eða eru að fara byrja borða jólamatinn. Og hvað er þá betra en að skrifa smá jólakveðju til ykkar allra þarna úti?!

Mjög fátt hefur gerst í desember sem vert er að skrifa um, en það helsta er kannski að núna er Torfi kominn með 0fur tölvu sem afklæðir stelpur sjálfkrafa rétt eins og ´Icemat 2nd. Edition-in´ mín gerir, sem var einmitt gjöf til mín frá Torfa.
Þannig að Torfi er greinilega allur í því að kaupa hluti sem afklæða hitt kynið sjálfkrafa...
....Og það er sko ekkert að því!

En núna er ég farinn fram að borða jólamatinn, jei!..

Gleðileg Jól

Lag dagsins: Master P - Oh Christmas Tree

» 12 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 04:39:45 / Torfi

Late night blogg...

Já, klukkan er 04:39 og ég er ekkert þreyttur, tími fyrir blogg.

Fyrst og fremst þá átti Bogi afmæli 25. nóv síðast liðinn. 20 er stór tala en t***ið er enn svo lítið? :D Að sjálfsögðu var haldið rave-partý í herberginu hans eins og honum einum er lagið. Dræm mæting var í þetta teiti, vegna bústaðaferðar. Þess vegna hvet ég alla til að heimsækja Boga, að Lágmóa 5, með pakka og kyssa hann í bak og fyrir. Sjálfur gaf ég honum ICEMAT 2nd Edition, gula, sem afklæðir stelpur sjálfkrafa.

EN... http://zaki.istheshit.net/ WTF?

Við félagarnir skellum okkur í fótbotla á fimmtudaginn eins og er reglulegt. Þetta stóð uppúr:

  • Hörður Ari Gunnarsson kom í fótbolta
  • Þeir sem þekkja til vita að þetta er stórmerkilegt
  • Bogi snéri á sér ökklann.
  • Hann hætti.
  • Það brýtur í bága við lög okkar um að "aldrei hætta."
  • Miskunn var sýnd í boltanum
  • En þar á að ríkja "engin miskunn"
  • Atli var ótvíræður sigurvegari í keppni um úsnyrtilegasta manninn að neðan.
  • bwahaha.
  • Bustaði þá keppni.
  • Reyndar kom Bogi inn í öðru sæti.
  • Bjarni var í síðasta sæti.
  • Það er gott að vera í síðasta sæti í þessari keppni.
  • Hörður kom með hárþurrku í fótboltann.
  • Steinar fékk boltann í punginn, eins og alltaf.
  • Liðið mitt vann, að sjálfsögðu.
  • Flestir voru sáttir

Síðasta vika hefur verið kreisei í skólanum, tvö lokaverkefni ásamt þessum fjórum elskulegu heimadæmum sem þarf að skila í hverri viku. Ég tók þetta allt saman með trompi og skilaði á réttum tíma. æPÆ?

Football Manager 2006 er kominn út. Hægt er að ná í hann á www.meatspin.com frítt.

heh0hahóhíhóhá

Það daglega:

  • Skóli
  • Heimadæmi
  • Matarafgangar á tölvuborðinu
  • Stress fyrir prófin.
  • Bogi
  • Svefnleysi
  • Football Manager 2006
  • CS
  • lol
  • Nýtt teppi á stiganum.
  • Diskurinn Make Believe með Weezer.
  • Sléttujárnsleysi
  • Vill einhver gefa mér sléttujárn? :$

Lag vikunnar: The Mars Volta - Televators.
Frábært lag, í rólegri kanntinum og ég tek til baka sumt það ljóta sem ég sagði um TMV, en BARA sumt. :evil:

Jæja, þetta er ágætt að sinni. Ferkst blog úr bústaðaferðinni væntanlegt. *hóst* Bjarniaðdeyjakl16 *hóst*

Torfi out..


» 50 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2